Fara í meginmál

Heimaverk sameinar hönnun, ráðgjöf og framkvæmd

Heimaverk ehf er verktaka-, hönnunar- og ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í flísalögnum, hönnun baðherbergja og allri almennri múrvinnu. Við mælum rými, teiknum upp hugmyndir þegar það á við, gerum tilboð og aðstoðum við að setja framkvæmdina í raunhæfan farveg.

Heimaverk hefur byggt upp gott orðspor fyrir heiðarleg samskipti, faglega þjónustu og vönduð vinnubrögð. Áherslan er einföld: að verkefnið sé vel undirbúið, unnið af réttum aðilum og klárað með frágangi sem stendur undir væntingum.

Flísalagt rými unnið af Heimaverk

Teymið

Liðsmenn Heimaverk eru 10 talsins. Hópurinn samanstendur af framkvæmda- og verkefnastjóra, verkstjóra, verkfræðingi, pípulagninga- og flísalagningamönnum með mikla reynslu á sínu sviði.

Áherslur

  • Skýr samskipti
  • Raunhæf áætlun
  • Vönduð undirvinna
  • Nákvæmur frágangur
  • Virðing fyrir heimilinu eða vinnustaðnum

Umsagnir viðskiptavina

Gott að eiga samskipti við Heimaverk og allt sem lagt var upp með stóðst. Mælum hiklaust með Heimaverk við alla sem eru á leiðinni í framkvæmdir.

Guðmundur Unnarsson og Kristín Sveinsdóttir

Heimaverk flísalögðu og parketlögðu allt húsið okkar á mettíma, völdu fyrir okkur flísar og sáu um allt sem þurfti. Vönduð vinnubrögð, kurteisir og frábærir starfsmenn. Heimaverk fá hæstu mögulega einkunn frá okkur.

Elfa Hrafnkelsdóttir og Ellert Sigurðsson

Hönnuðu, teiknuðu og flísalögðu heilt baðherbergi hjá okkur frá A–Ö. Frábær vinnubrögð, alltaf á réttum tíma og þjónustan frá Búa er eitthvað sem ég hef aldrei upplifað neins staðar áður.

Páll Ágúst Aðalheiðarson og Lovísa Birta

Heimaverk flísalögðu baðherbergið okkar og fóru fram úr öllum okkar væntingum, snyrtilegir, vinnusamir og mættu alltaf á tilsettum tíma og unnu verkið hratt og örugglega. Heimaverk fær okkar bestu meðmæli 10+.

Ómar Þorleifsson og Hafdís Birkisdóttir

Við fengum Heimaverk til að sjá um allt húsið okkar. Þeir flísalögðu öll gólf og bæði baðherbergin, þeir settu líka upp eldhúsið okkar og margt fleira. Stundvísir, kurteisir og ótrúlega duglegir strákar. Þeir kláruðu verkið líka langt á undan áætlun sem við áttum aldrei von á að myndi gerast. Við erum ótrúlega ánægð og mælum hiklaust með Heimaverk.

María Ósk Guðbrandsdóttir og Ægir Jónsson

Algjörlega frábærir, takk fyrir góða þjónustu, frábæra vinnu og ánægjuleg samskipti.

Vilmundur Möller Sigurðsson og Svala Möller

Vinnan hjá Heimaverk var frábær og vel gengið frá öllu. Greinilega fagmenn á ferð og allt upp á millimetra.

Snorri Sturluson og Erla Eðvarðsdóttir

Þvílík fagmennska og súper þjónusta í alla staði! Að upplifa það að tímaáætlun standist er sjaldheyrt nú til dags, allt stóðst sem lofað var og vinna til fyrirmyndar. Mæli með Búa og hans mönnum 100%.

Kristín Stefánsdóttir

Það er óhætt að mæla með Heimaverk. Vinnusamir, stundvísir, hreinlegir, vandvirkir og allt stóðst eins og stafur á bók.

Kristín Harðardóttir og Fjóla Rún Jónsdóttir

Við erum ótrúlega ánægð að hafa valið Heimaverk, frábær þjónusta og framúrskarandi vinnubrögð.

Einar Sigurþórsson

Bóka heimsókn